Síðan Eru Liðin Mörg Ár

Síðan Eru Liðin Mörg Ár

Brimkló

Альбом: Fyrstu Árin
Длительность: 3:16
Год: 1991
Скачать MP3

Текст песни

Ég læðist oft upp á háaloft
til að hnýsast í bömul blöð
þegar sit ég þar koma upp minningar
og atburðarás verður hröð.
Allir strákarnir voru í támjóum skóm
og stelpur með túperað hár.
Já, á sunnudögum var rekstrasjón,
- en síðan eru liðin mörg ár.

Þeir greiddu í píku,
á þessum dögum
þeir greiddu í píku,
undir Presley lögum.
Komdu með upp á loft
þú færð séð það sem gerðist þá
hárið smurt með adrett
ef ég mér tímavél ætti
þá gaman þætti að hverfa aftur
ein tólf, þrettán ár.
Þá fannst mér tíðin góð,
en brátt við verðum ellimóð.

Það var kannski ekkert smart
þó var ansi margt,
sem var skemmtilegra í denn tíð.
Þegar Glaumbær stóð
var hver helgi góð
allt á fullu ár og síð.

Þá var hljómsveit í hverjum skóla
þá voru sömu vonir og þrár
og þá var rúnturinn
meldingarpunkturinn,
- en síðan eru liðin mörg ár.

Þeir greiddu í píku,
á þessum dögum
þeir greiddu í píku,
undir Presley lögum.
Komdu með upp á loft
þú færð séð það sem gerðist þá
hárið smurt með adrett
ef ég mér tímavél ætti
þá gaman þætti að hverfa aftur
ein tólf, þrettán ár.
Þá fannst mér tíðin góð,
en brátt við verðum ellimóð.