Kaupmaðurinn Á Horninu
Bubbi Morthens
3:08Sumar konur hlæja eins og hafið í höndum þeirra ertu lítið peð. Aldrei skaltu svíkja þannig konu sál þína hún tekur og hverfur með. Þannig konu karlinn skaltu varast. Kallaðu á drottinn, það hjálpar ekki neitt. Það sefur enginn sálarlaus maður Sársaukanum fær enginn breytt. Og í nótt munu bræður mínir gráta. Og í nótt munu bræður mínir gráta með hjörtun særð og blá. Að vakna sem sálarlaus maður líta til baka og vita inni í sér að konur sem hlæja eins og hafið í brjósti sínu geyma sorfin sker. Sumar konur hlæja eins og hafið í höndum þeirra ertu lítið peð. Aldrei skaltu svíkja þannig konu sál þína hún tekur og hverfur með.