Regnbogans Stræti
Bubbi Morthens
5:46Það er myrkur úti Ekki hafa hátt Og leiðin inní hjartað Er opin uppá gátt Ekki fara gráta Né þig grafa undir sæng Gæskan mun passa þig Og geyma undir væng Verði þér allt að sólu Það fer allt vel Mundu bara sýna öllum Á veginum vinarþel Gæskan mun gæta þín Gleymdu aldrei því Einn daginn ertu farin Aftur frjáls á ný Byrjaðu gönguna Þó þú vitir ekki hvar Hjartað mun alltaf eiga Við öllum spurningum svar Netið er þéttriðið Þú sleppur ekki í gegn Þar ráfa áfallahjarðir Þar fellur bleksvart regn Þar er lítið um ljós Ekki leggjast undir sæng Gæskan mun passa þig og Geyma undir sínum væng